„Þú munt alltaf líða fyrir það“
Ragnar Axelsson var innan við tvítugt þegar hann viðraði það við Matthías Johannessen, þáverandi ritstjóra Morgunblaðsins, að mynda lífið á Grænlandi. Hann var þá að læra að fljúga og fékk að fara með í leiguflugi til Grænlands til að safna flugtímum.
Hann sagði Matthíasi að myndirnar gætu orðið merkilegar eftir nokkra áratugi. Tveimur dögum síðar kom ritstjórinn aftur til hans og sló á öxl hans. Ragnar rifjar upp að Matthías hafi sagt við sig að þeir skyldu ráðast í verkefnið og bætt við:
„Þú munt alltaf líða fyrir það gagnvart ákveðnum svona menningargeira á Íslandi að hafa unnið að Morgunblaðinu.“
Orð ritstjórans rættust
Ragnar segir orð Matthíasar hafa ræst að því leyti að lítið hafi verið fjallað um sýningarnar hér heima. Hann segist þó sofa rólega yfir því og þykja vænt um hlýjar kveðjur frá fólki sem gefur sig á tal við hann.
Stórvirki kemur út
Á næstu dögum kemur út bókin Veiðimaður frá Ittoqqortoormiit og dregur nafn sitt af afskekktu þorpi á austurströnd Grænlands þar sem Ragnar hefur myndað mannlífið frá árinu 1992. Fjallar hún öðrum þræði um veiðimanninn Hjelmer Hammeken sem er mikill vinur Ragnars. Bókin kemur einnig út á ensku og hefur hún nú þegar selst í forsölu ytra í meira en 600 eintökum.
Bókin er engin smásmíði og ræðir Ragnar, eða RAX eins og flestir þekkja hann, tilurð hennar og innihald í Spursmálum að þessu sinni.
Viðtalið má sjá og heyra í spilaranum hér að neðan:
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗