Fyrst í mark þrátt fyrir hundaárás

Íþróttir | mbl | 22.11.2026 | 18:30

Stine Rex er 47 ára gömul.

Stine Rex er 47 ára gömul. Ljósmynd/Pápai Heni

Ofurmaraþonhlauparinn Stine Rex var fyrsta konan að koma í mark í hinu víðfræga maraþonhlaupi Feidipídesar í morgun en það var ekki sjálfgefið þar sem hún var bitin af hundi á leiðinni.

Ofurmaraþonið sem um er að ræða er kennt við forngrikkjann Feidipídes er hann hljóp frá Aþenu til Spörtu og svo aftur til baka árið 490 fyrir Krist. Feitipídes dó samstundis eftir að hafa tilkynnt íbúum Aþenu sigur á Persum við maraþon.

Ofurmaraþonið sem Rex hljóp er hins vegar aðeins lengra en það sem Feidipídes hljóp eða 485 kílómetrar.

Rex greindi frá því að þegar hún átti aðeins 39 kílómetra eftir hafði laus hundur ráðist á hana sem olli því að hún þurfti að fá stífkrampasprautu áður en hún gæti haldið áfram.

Þetta truflaði hana greinilega ekki nógu mikið og kom hún fyrst kvenna í mark í morgun eftir 78 klukkutíma og 24 mínútur.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab