Bókaspjall: Hörður Grímsson glímir við sjálfhverfan sjónvarpsmann

„Gleym mér ei“, nýjasta bók Stefáns Mána um rannsóknarlögreglumanninn Hörð Grímsson, er um margt óvenjulegt verk á ferli höfundar. Í bókinni horfist lesandinn ekki í augu við botnlausa illsku, eins og í mörgum bókum Stefáns Mána, og sá ofbeldishryllingur sem hefur verið vörumerki höfundar er nú fjarri. En syndin er verkfæri djöfulsins og mannlegur breyskleiki, sjálfhverfa, kynlífsfíkn og hugleysi valda miklum þjáningum og hörmungum í þessari sögu. 

Sjálfhverfur sjónvarpsmaður með fíkn í kókaín og kynlíf veldur hræðilegu umferðarslysi, ekur á sjö ára stúlku sem lætur lífið. Maðurinn flýr af vettvangi og tekst árum saman að koma sér undan því að standa reikningsskil gjörða sinna. Hörður Grímsson lofar foreldrum látnu stúlkunnar að finna manninn sem banaði dóttur þeirra og loforðið verður að þráhyggju hans árum saman, en hann lendir þó strax á villigötum í rannsókninni. Málið víkur aldrei úr huga hans þó að árin líði og hann reynir sífellt að leita nýrra leiða til að ráða gátuna. 

Greint er frá öðrum málum sem Hörður leysir á meðan hann kemst ekkert áfram í leitinni að ökumanninum. Í sumum þessara mála verða óvæntar tengingar við þetta mál og þær tengingar og tilviljanir sem koma fyrir í bókinni hafa á sér raunveruleikabragð fremur en að bera keim af glæpasagnaformúlu. Þetta er vissulega spennusaga en þetta er líka að mörgu leyti raunsæ og trúverðug saga um siðferði, synd og samvisku.

Nýlega varð til í umræðum í bókmennaþættinum Kiljunni orðið „flettiorka“, um sögur sem halda lesandanum svo við efnið að hann vill sífellt fletta áfram og helst ekki leggja frá sér bókina fyrr en lestri hennar er lokið. „Gleym mér ei“ er stútfull af flettiorku. Sagan er mjög ófyrirsjáanleg og höfundur leiðir lesanda í óvissuferð sem hann lengi vel áttar sig engan veginn á hvert liggur. En svo tengjast ólíkir þræðir saman og allt gengur upp í snjallri lausn. 

Þetta er listavel fléttuð saga og líklega með betri bókum Stefáns Mána en þar er, eins og allir vita, af nógu að taka. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab