Frakkar vara Þjóðverja við – Segja að þeir „geti af slysni hrundið kjarnorkustríði af stað“
Pressan
Sunnudaginn 22. nóvember 2026 18:30
Frakkar hafa áhyggjur af Þjóðverjum. Mynd úr safni.
Franskir embættismenn hafa áhyggjur af að Þjóðverjar geti óvart farið að þröskuldi kjarnorkustríðs við Rússland ef þeir skilgreina ekki hvernig þeir munu nota ný langdræg flugskeyti sín.
Mörg Evrópuríki, þar á meðal Bretland, Þýskaland og Pólland hafa gripið til aðgerða til að styrkja varnir sínar til að reyna að fæla Rússa frá því að ráðast á Evrópu.
Hluti af þessum aðgerðum er að Þjóðverjar eru að koma sér upp langdrægum flugskeytum sem draga frá 500 km upp í 2.000 km.
Franskir og þýskir embættismenn munu fljótlega setjast niður og ræða hvernig þessi flugskeyti verða notuð því Frakkar óttast að notkun þeirra geti orðið til að Rússar svari fyrir sig með því að beita kjarnorkuvopnum. Financial Times skýrir frá þessu.
Sjónirnar beinast að Þýskalandi vegna mikillar aukningar á útgjöldum til varnarmála þar í landi en ætlunin er að verja 780 milljörðum evra í málaflokkinn fram til 2030.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗