Flykktust í Kringluna að skoða gripinn

Þessir hressu strákar lögðu leið sína í Kringluna að skoða bikar ensku úrvalsdeildarinnar mbl.is/Anton Brink

Örtröð myndaðist í Kringlunni í dag en bikar ensku úrvalsdeildarinnar var þar til sýnis. 

Viðburðurinn var á vegum Sýnar sport sem er rétthafi ensku úrvalsdeildarinnar hér á landi. 

Íslendingar eru knattspynuóð þjóð og er enski boltinn eitt vinsælasta sjónvarpsefni landsins. Því var fyrirséð að töluverður fjöldi myndi leggja leið sína í Kringluna að berja bikarinn augum. 

Mikill áhugi var á því að sjá bikarinn.

Mikill áhugi var á því að sjá bikarinn. mbl.is/Anton Brink

Tvö eintök eru til af bikarnum. Annað þeirra er í vörslu núverandi Englandsmeistara í Arsenal en hitt eintakið var í Kringlunni í dag. 

Aðeins einn Íslendingur hefur unnið ensku úrvalsdeildina en Eiður Smári Guðjohnsen vann hana í tvígang, árin 2005 og 2006.

Eiður Smári var að sjálfsögðu á staðnum og var sá eini sem mátti snerta bikarinn. Hann tók einnig þátt í pallborðsumræðum ásamt Hjörvari Hafliðasyni og Andra Má Eggertssyni.

Tvö eintök eru til af bikarnum.

Tvö eintök eru til af bikarnum. mbl.is/Anton Brink

Margir mættu í treyju.

Margir mættu í treyju. mbl.is/Anton Brink

Bikarinn var til sýnis í Kringlunni

Bikarinn var til sýnis í Kringlunni Anton Brink

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab