Magdeburg í engum vandræðum án Ómars
Magdeburg vann ellefu marka sigur, 33:22, á Hamburg í efstu deild þýska handboltans í dag.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sjö mörk og gaf eina stoðsendingu og Elvar Örn Jónsson skoraði eitt og gaf þrjár stoðsendingar fyrir Magdeburg sem lék án Ómars Inga Magnússsonar í dag. Einar Þorsteinn Ólafsson lék ekki með Hamburg í dag.
Flensburg fylgir á hæla Magdeburg en liðið vann 40:33-sigur á Rhein Neckar Löwen í dag.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði 3 mörk og varði eitt skot í vörninni fyrir Flensburg og Haukur Þrastarson skoraði 6 fyrir Löwen auk þess að gefa tvær stoðsendingar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/64/20/1642095.jpg)