Landsliðsmarkvörðurinn lagði upp mark
Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir lagði upp eitt marka Inter í 4:0-útisigri á Ternana í efstu deild ítaska fótboltans í dag.
Inter hafði talsverða yfirburði í dag og voru 2:0 yfir í hálfleik. Inter bætti við marki snemma í síðari hálfleik og Cecilía lagði upp síðasta mark liðsins í uppbótartíma.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir spilaði einnig allan leikinn í liði Inter í dag.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗