Björgunarsveitin Bára kölluð út þegar ær með tvö lömb lenti í sjálfheldu

Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi var kölluð út í dag þegar ær með tvö lömb lenti í hálfsheldu í skúta við Einstigsfoss í Hamarsá í Hamarsdal suður af Berufirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

„Rjúpnaveiðimenn höfðu gengið fram á ánna í gær, laugardag, og látið vita af dvöl hennar ásamt lömbum sínum inn á dalnum.

Þegar hugað var að henni í morgun varð ljóst að hún var ekki reiðubúin til að halda til byggða strax og stökk undan smölunum. Vildi þá ekki betur til en svo að áin lenti í ánni og barst, ásamt lömbum sínum, með henni einhverja leið þangað til hún komst í skjól í skúta.

Þar var vistin hins vegar ekki góð, þar hökti áin að hluta til í ánni og komust þau hvergi, lömbin og áin.“

Björgunarsveitin hélt inn á dal og tókst að komast að ánni rétt ofan við skútann og setti þar á flot kajak. Þannig var hægt að koma mannskap að ánni og lömbunum. Lömbin tóku björgunarsveitarfólki vel og þáðu far með kajaknum. Ærin var ekki eins samvinnufús.

„Áin var hins vegar á þeim buxunum að halda fyrir í skútanum en að lokum tókst björgunarmönnum að koma á hana böndum og draga yfir ána og sameina þar fjölskylduna.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab