Ef „vírus-fundinn“ aðvörun birtist á skjánum máttu ekki gera þetta

Skilaboðin birtast venjulega þegar fólk er bara að ráfa um Internetið í mestu makindum. Þau segja þér að tölvuveira hafi fundist í tölvunni og þú þurfir að bregðast strax við með því að hringja í númerið sem birtist á skjánum til að fá aðstoð.

Markmiðið er að hræða þig svo þú hringir í númerið til að fá aðstoð. En á hinum endanum er svikahrappur sem reynir að selja þér gagnslausa vírusvarnaráskrift eða fá fjaraðgang að tölvunni þinni.

Það er símanúmerið á skjánum sem kemur upp um svindlið. „Ekta aðvaranir og skilaboð af þessu tagi myndu aldrei biðja þig að hringja í eitthvað númer,“ segir í leiðbeiningum frá bandaríska neytendaeftirlitinu.

Bendir eftirlitið á ekta veiruvarnarforrit bendi notendum á hvernig þeir eiga að takast á við tölvuveiru með sjálfu forritinu, ekki með því að hringja í eitthvað númer.

Fjögur merki um að sprettigluggatilkynning sé fölsk:

Skilaboðin koma frá netvafranum eða heimasíðu, ekki frá vírusvarnarforritinu.

Það stendur símanúmer í aðvöruninni. Símanúmer í svona aðvörun er alltaf svindl.

Vefslóðin er ekki tengd neinu vírusvarnarforriti. Hún er annað hvort bara tilviljanakennd eða afbökun á raunverulegri vefslóð vírusvarnarfyrirtækis.

Skilaboðin pressa þig með niðurtalningu, stórum bókstöfum og upphrópunarmerkjum.

Svona lokar þú sprettiglugganum

Þú mátt ekki ýta á takkana í sprettiglugganum og heldur ekki á „loka“, „OK“ eða krossinn inni í glugganum, þessi takkar eru hluti af svindlinu. Lokaðu öllum vafranum með því að ýta á Alt + F4 eða (Ctrl + Shift + Esc) í Windows. Í Mac er það með Cmd + Q.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab