Stórleikur hjá Donna í sigri á Elvari og félögum

Kristján Örn Kristjánsson, Donni.

Kristján Örn Kristjánsson, Donni. mbl.is/Hákon

Skanderborg vann 35:33-sigur á Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Kristján Örn Kristjánsson, Donni, fór á kostum í liði Skanderborg og skoraði 12 mörk. 

Donni skoraði mörkin 12 úr 18 skotum, en auk þess lagði hann upp sjö mörk fyrir liðsfélaga sína.

Elvar Ásgeirsson átti einnig mjög öflugan leik í liði Ribe-Esbjerg og var markahæsti leikmaður liðsins með 6 mörk úr 10 skotum og gaf 5 stoðsendingar.

Skanderborg er í 5. sæti deildarinnar með 18 stig en Ribe-Esbjerg er tveimur sætum neðar með 15.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab