Segir árásina á 1984 ehf. hafa verið fyrirsjáanlega - „Fyrirsjáanleg af því að 1984 spurði engra spurninga“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Sunnudaginn 22. nóvember 2026 17:39

Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur

Stjórnsýslufræðingurinn Haukur Arnþórsson telur að tölvuárás á hýsingarfyrirtækið 1984 ehf. hafi verið fyrirsjáanleg. Fyrirtækið hafi kallað það yfir sig með því að vera svokallað „free-speech platform“.

Haukur skrifar í Facebookfærslu:

„Árásin á netþjónustufyrirtækið 1984, sem er einhver harðasta árás sem gerð hefur verið á netinu gagnvart einstöku íslensku fyrirtæki, var fyrirsjáanleg. Hún var fyrirsjáanleg af því að 1984 spurði engra spurninga – lét viðskiptavini sína njóta nafnleyndar, 1984 er svokallað „free-speech platform“. Nafnleynd á netinu var talin eftirsóknarverð fyrir um 30 árum og draumar um nafnlausan heim netsins eru taldir eiga sér bólfestu hjá 1984. Þó er talið að 1984 taki út allt efni sem brýtur í bága við íslensk lög, s.s. gróft klám.“

Haukur segir að réttlætingin fyrir þessu sé sú að frelsið sé best varðveitt ef allir fá að deila sínum skoðunum.

„Þetta á sér þá réttlætingu að frelsið varðveitist best ef allir fái að koma fram í ljósið með sínar skoðanir – en ekkert frelsi sé undir hótunum – frammi fyrir byssukjafti. Og við erum að tala um að árásinni virðist hafa verið beint að vefjum sem innihéldu palestínskan áróður. Í upphafi beindist árásin að þeim.

Þetta er ekki nýtt. Bandarísku samtökin ADL (Anti-Defamation League), sem berjast gegn gyðingahatri á netinu, sendu utanríkisráðuneytinu bréf árið 2022 þar sem þau kröfðust þess að ákveðnum vef yrði lokað hjá 1984. Við því var ekki orðið. Málið varð dómsmál og gekk til Landsréttar. Þetta mál er rifjað upp núna.“

Fyrirtækið greindi frá því á föstudag að það hefði orðið fyrir umfangsmikilli og alvarlegri tölvuárás. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Mörður Áslaugarson, upplýsti í gær að líklegt þætti að áhersla árásaraðila hefði verið að skemma síður sem tengjast Palestínu með einhverjum hætti. Um hafi verið að ræða vel fjármagnaða, þaulskipulagða og fagmannlega árás. Árásin hafi verið af stærðargráðu þjóðríkis.

Meirihluti viðskiptavina fyrirtækisins er erlendur. Ekki liggur fyrir hvort að gagnaleki hafi orðið eða ekki.

Haukur veltir fyrir sér hvort stefna fyrirtækisins hafi það í för með sér að þangað leiti aðilar sem veita þjónustu sem ekki þoli dagsins ljós og fái hvergi vettvang annars staðar.

„Eru stjórnendur fyrirtækisins ekki gamaldags, safnast ekki að þeim alls konar þjónusta sem ekki þolir dagsins ljós – eða fær hvergi inni annars staðar? Það má reikna með því. Eftir árásina á tvíburaturnana var ljóst að draumurinn um nafnleysi á netinu heyrði fortíðinni til. Leyniþjónustur og önnur stjórnvöld þurfa að vita hver er hvað – og gera það.

Þannig að jafnvel þó stjórnendur 1984 viti ekki að hjá þeim sé mikið af palestínu-áróðri og jafnvel áróðri ISIS-liða – sem fær hvergi annars staðar inni – þá vita leyniþjónustur það. Og árásin er svo öflug að hún er helst talin framkvæmd á vegum ísraelskra stjórnvalda.

Er 1984 einsdæmi meðal netþjónustuaðila hér á landi? Ekki að talið er. Vegna fjórða leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu um árið varð að loka ljósleiðurunum til landsins. Þá var framkvæmd umfangsmesta tölvuárás sem Ísland hefur orðið fyrir – beindist að Stjórnarráðinu, Alþingi, bönkum o.fl. Þegar ljósleiðurunum hafði verið lokað héldu árásirnar áfram frá viðskiptavinum innanlands – að því er virtist frá viðskiptavinum viðskiptavina Advania. Þá varð ekki ljóst hver stóð að baki árásunum – en auðvitað beindust grunsemdir að Rússum.

Frelsi vs. öryggi!“

Mörður hefur svarað færslu Hauks og tekur þar fram að fyrirtækið umberi ekki rasisma, gyðingahatur, hvatningu til ofbeldis eða nokkurs konar ólöglegt efni. Allt slíkt er tekið niður án tafar. Fyrirtækið er þó á móti pólitískri ritskoðun.

„Við áskiljum okkur meira að segja rétt til að taka niður efni sem við teljum ósiðlegt. Við myndum ekki vilja hýsa nýnasista þótt þeir séu löglegir. Eða gyðingahatur. Alls ekki.

Við erum hins vegar ekki hrifin af pólitískri ritskoðun. Nafnið á fyrirtækinu er ekki tilviljun og vísar í skáldsögu George Orwell sem lýsir ástandi sem einkennist af allsherjarritskoðun alls. Við höfum gert það að ævistarfi okkar að andæfa slíku og hýsum mjög mikið af efni frá fólki sem lifir undir grimmilegri kúgun. Við munum gera það áfram.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab