Fram náði í sigur þrátt fyrir erfiða byrjun
Fram vann mikilvægan 27:24 sigur á Gróttu þegar liðin mættust í úrvalsdeild kvenna í handbolta á Seltjarnarnesi í dag. Fram er í fjórða sæti með 14 stig en Grótta er í níunda og næstneðsta sæti með 4.
Heimakonur byrjuðu af krafti og komust í 3:0. Þær juku forskotið síðar í 8:3 en Fram vann sig inn í leikinn og jafnaði í 12:12. Gestirnir skoruðu síðan þrjú síðustu mörk fyrri hálfleiks og leiddu 15:13 í leikhléi.
Seinni hálfleikur var jafn og spennandi. Grótta jafnaði meðal annars í 20:20 og komst yfir, 22:21 þegar ellefu mínútur voru eftir.
Þá tók Fram hins vegar öll völd á vellinum og skoraði sex mörk í röð án þess að Grótta næði að svara og breyttu stöðunni í 27:22 og þar með var sigurinn í höfn. Lokatölur urðu 27:24.
Lena Margrét Valdimarsdóttir og Valgerður Arnalds voru markahæstar hjá Fram með sex mörk hvor. Arna Sif Jónsdóttir varði níu skot í markinu og átti mikilvægan þátt í endurkomu liðsins.
Þóra María Sigurjónsdóttir fór fyrir Gróttu og skoraði sjö mörk. Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir skoraði sex og Andrea Gunnlaugsdóttir varði níu skot í markinu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

