Karlar í skúrum flytja í Gerðuberg

Karlar í skúrum er samfélagslegt verkefni en líka félagsskapur.

Karlar í skúrum er samfélagslegt verkefni en líka félagsskapur. mbl.is/Hákon

Borgarráð hefur samþykkt leigusamning við Karla í skúrum um leigu á hluta húsnæðis í Gerðubergi 1 í Breiðholti.

Að ósk velferðarsviðs borgarinnar hóf eignastýring viðræður við forsvarsmenn Karla í skúrum. Þeir voru áður í húsnæði borgarinnar á Arnarbakka 2-6 en hefur vantað húsnæði eftir að Arnarbakkinn var rifinn.

Um er að ræða um 129 fermetra í suðurhluta jarðhæðar og leigugjald er kr. 57.900 á mánuði.

Fram kemur á vef Rauða krossins að Karlar í skúrum sé samfélagslegt verkefni og félagsskapur fyrir karlmenn (18 ára og eldri), byggt á ástralskri fyrirmynd.

Markmiðið er að draga úr einangrun, efla félagsleg tengsl og bæta andlega, líkamlega og félagslega vellíðan karla í gegnum spjall, kaffidrykkju og sameiginlegt handverk eða skapandi verkefni.

Verkefnið Karlar í skúrum er að finna á fleiri stöðum á höfuðborgarsvæðinu. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab