Hættu að eltast við 10.000 skrefin – Þetta þarftu að vita ef þú vilt léttast

Pressan

Sunnudaginn 22. nóvember 2026 17:00

Það er hollt að fara í göngutúr. Mynd:Getty

Göngutúr er auðveld leið til að bæta við hreyfinguna yfir daginn. Margir eyða stórum hluta dagsins sitjandi, bæði í vinnunni og heima. Þegar vinnudeginum er svo lokið getur sófinn verið meira freistandi en að fara og hreyfa sig.

Sem betur fer þarf ekki endilega að kaupa aðgang að líkamsræktarstöð eða einhvern sérstakan útbúnað til að geta stundað hreyfingu. Fyrir þá sem vilja léttast, þá geta reglulegar gönguferðir verið góð byrjun.

Bandarísk heilbrigðisyfirvöld segja að fullorðnir ættu að stunda hreyfingu, með hóflegri ákefð, í að minnsta kosti 150 mínútur á viku. Þetta svarar til 30 mínútna rösklegrar göngu fimm daga í viku.

Hálftíma göngutúr er góð byrjun en ef fólk vill losna við fitu þá getur reynst nauðsynlegt að lengja göngutúrinn upp í 40 til 60 mínútur.

Hraðinn skiptir einnig máli. Þegar gengið er rösklega á maður helst að verða aðeins móður en þó fær um að halda uppi samræðum.

Það þarf heldur ekki að ganga 10.000 skref á dag.

Í rannsókn, sem var birt í vísindaritinu The Lancet Public Health kemur fram að heilsufarsáhrif göngutúrsins nái hámarki við 7.000 skref.

Til að mæta þessu er hægt að breyta göngutúrnum í þá veru að maður breytir hraðanum oft. Það er til dæmis hægt að byrja með fimm mínútna rólegri göngu, síðan er gengið rösklega í þrjár mínútur og síðan er hægt á sér í tvær. Þetta er endurtekið fjórum sinnum.

Iglanc segir að 70 kílóa manneskja brenni um 140 hitaeiningum við að ganga í 30 mínútur með 5,6 km hraða á klukkustund.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab