Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Samkennd og góðvild
Hvernig byggjum við samfélag þar sem við getum treyst hvert öðru og enginn þarf að standa einn?
Hvernig væri að lifa í samfélagi þar sem við gætum treyst því að fólkið í kringum okkur vilji okkur vel? Þar sem við getum sagt frá því hvernig okkur líður, því við gerum ráð fyrir að okkur verði mætt með skilningi, umhyggju og stuðningi.
Hvaða áhrif hefði slíkt samfélag á lífshamingju okkar?
Samkennd felst í því að reyna að skilja líðan annarra og láta okkur velferð þeirra varða. Góðvild er viljinn til að gera öðrum gott. Hún birtist í viðmóti okkar, orðum og verkum.
Við þurfum ekki að geta leyst vandamál annarra. Oftast er mikilvægast að hlusta, sýna áhuga og láta vita að viðkomandi standi ekki einn.
Hvað viljum við gera til að samkennd og góðvild verði ein af grunngildum samfélagsins?
Fyrstu 1.000 dagarnir – grunnur að sjálfstrausti
Fyrstu 1.000 dagar í lífinu er afar mikilvægur tími í þroskaskeiði barnsins. Á þessum tíma þróast heilinn hratt og barnið lærir smám saman að þekkja heiminn í gegnum samskipti sín við fólkið sem annast það. Þegar barn fær hlýju, góða nærveru og viðbrögð við þörfum sínum byggir það smám saman upp öryggiskennd og traust. Það upplifir að allt fólkið í kringum það sýnir því stöðuga góðvild, verndar og styður eins vel og kostur er.
Langvarandi óöryggi, vanræksla eða mikil streita án nægilegs stuðnings geta hins vegar haft áhrif á þroska og líðan barnsins síðar á ævinni. Þroski og viðhorf okkar halda áfram að styrkjast eftir fyrstu 1.000 dagana. Ef í samfélaginu er menning samkenndar og góðvildar byggjum við áfram upp traust og öryggi með góðum tengslum og stuðningi allt lífið.
Getum við ekki lagt grunninn að betra samfélagi með því að tryggja að hvert barn fái eins gott atlæti og mögulegt er frá upphafi?
Það þarf heilt „þorp“ til að ala upp barn
Að eignast barn er eitt dásamlegasta en jafnframt mest krefjandi verkefni sem fólk tekur að sér. Ungir foreldrar vilja börnum sínum allt það besta. En foreldrahlutverkið getur verið erfitt þegar álag er mikið, fjárhagurinn þröngur eða stuðningsnetið veikt. Þá skiptir miklu máli að samfélagið standi strax með fjölskyldunni.
Við þurfum að styðja foreldra sem þurfa aðstoð áður en erfiðleikarnir verða yfirþyrmandi. Bjóða ráðgjöf, hvíld og stuðning án þess að fólk þurfi að upplifa skömm eða vanmátt.
Hér geta afar, ömmur, ættingjar, vinir og nágrannar gegnt ómetanlegu hlutverki. Einnig leikskólar, heilsugæsla, félagsþjónusta og félagasamtök. Markmiðið er ekki að taka ábyrgðina af foreldrunum heldur að styrkja þá til að sinna henni.
Samkenndin þarf að fylgja okkur alla ævi
Lífið færir okkur gleði og tækifæri en líka áföll sem við ráðum ekki alltaf við. Hvað gerist þegar einstaklingur missir maka sinn eftir áratuga sambúð? Þegar fjölskylda glímir við alvarleg veikindi? Þegar einhver missir vinnuna eða upplifir að fótunum sé kippt undan honum? Þá þurfum við samfélag þar sem fólk tekur eftir, spyr og býður fram hjálp.
Við viljum geta treyst því að þegar erfiðleikar steðja að stöndum við ekki ein. Við viljum vera tilbúin til að veita slíkan stuðning.
Við erum öll bæði gefendur og þiggjendur á mismunandi tímabilum ævinnar.
Eldra fólk – styrkur þorpsins
Hér tel ég að við eigum vannýtt tækifæri. Margt eldra fólk býr yfir mikilli reynslu, þekkingu og tíma sem það vill gjarnan nýta til góðs.
Getum við skapað fleiri tækifæri fyrir eldra fólk til að styðja ungar fjölskyldur, aðstoða börn við lestur, miðla reynslu eða vera til staðar fyrir fólk sem glímir við einmanaleika?
Þetta þarf ekki alltaf að vera launuð vinna. Að finna að maður hafi hlutverk, tilheyri og geti látið gott af sér leiða eru mikil lífsgæði.
Félög eldri borgara, skólar, sveitarfélög og félagasamtök gætu unnið markvissar saman að slíkum verkefnum. Samfélag verður sterkara þegar kynslóðirnar hjálpast að.
Hvernig koma stjórnmálin inn?
Samkennd og góðvild verða ekki tryggð með lögum og reglum að ofan. En stjórnmál geta haft mikil áhrif á hugarfar og þær aðstæður sem við búum við. Þess vegna tel ég mikilvægt að við spyrjum hvaða grunngildi stjórnmálaflokkar byggja á og hvernig þau birtast í verkum þeirra.
Eru mannréttindi, frelsi og lýðræði leiðarljós í ákvarðanatöku? Er lögð áhersla á að allir hafi raunveruleg tækifæri til að þroskast, njóta hæfileika sinna og taka þátt í samfélaginu?
Hvernig skipuleggjum við opinbera þjónustu? Spyrjum við fyrst hvað fólk þarf í raun og hvernig best sé að mæta þeim þörfum?
Snemmtækur stuðningur við börn og fjölskyldur er gott dæmi. Á lífsleiðinni verða alltaf erfiðleikar, en ef við fáum stuðning strax, þá leysast vandamálin oftast án flókinna úrræða. En því miður hættir okkur til að bíða þar til vandamálin eru orðin veruleg og þá þarf oft mjög dýra opinbera þjónustu.
Munum að samfélagið er meira en opinber þjónusta. Það byggist líka á frumkvæði einstaklinga, trausti og vilja okkar til að hjálpast að.
Friðurinn byrjar í þorpinu okkar
Í fyrri greinum mínum hef ég fjallað um hvernig við getum byggt brýr til friðar milli þjóða. En hugarfar friðar á ekki aðeins heima við samningaborð þjóðarleiðtoga. Það þarf líka að lifa í samskiptum okkar hvert við annað.
Friður felst ekki í því að við séum alltaf sammála. Hann felst meðal annars í því að við getum verið ósammála án þess að missa virðingu hvert fyrir öðru.
Kannski ættum við að spyrja okkur á hverjum degi: Hvernig get ég hvatt, veitt stuðning eða sýnt góðvild í dag?
Við eigum aðeins eina „Móður jörð“ og framtíð okkar er sameiginleg. Getum við gert þorpið okkar að stað þar sem samkennd og góðvild er hluti af okkar daglega lífi, allt frá fyrstu dögum barnsins til síðustu æviára okkar?
Ein jörð – ein fjölskylda – ein framtíð.
Höfundur er formaður stjórnar Öldungaráðs Viðreisnar, áhugamaður um árangursríka stjórnsýslu og lýðræði. Kennir leiðtogamenningu og Qigong – lífsrækt.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗