Handtekinn fyrir að brenna líkamsleifar „jólasveinsins“

Pressan

Sunnudaginn 22. nóvember 2026 17:30

Sankt Nikolai var fyrirmynd nútímajólasveinsins.

Beinum úr biskupnum Sankt Nikolai, sem var innblásturinn að nútímaútgáfunni af jólasveininum, var stolið úr kaþólskri kirkju í Lorraine í Frakklandi. Eftirlitsmyndavélar kirkjunnar náðu myndum af hinum grunaða þjófi og var hann í kjölfarið yfirheyrður af lögreglunni.

Þetta kemur fram á Facebooksíðu kirkjunnar.

Daily Mail segir að þjófurinn hafi játað að hafa brotið glerið, þar sem það sem eftir var af jarðneskum leifum Sankt Nikolai var geymt, og tekið beinin, brennt þau og kramið.

Þetta gerðist í lok október. Lögreglan brást fljótt við eftir að tilkynnt var um þetta og yfirheyrði hinn grunaða og ákæra hefur nú þegar verið gefin út og hefjast réttarhöldin fljótlega að sögn Magnum La Radio.

Við yfirheyrslur sagðist hann hafa viljað eyðileggja beinin til að „berjast gegn fetisisma“ sem þýðir að einhver dýrki hluti sem eru taldir búa yfir yfirnáttúrulegum kröftum eða hafa andlega þýðingu.

Sankt Nikolai var grískur biskup í Myra á fjórðu öld. Hann er sagður hafa haft fyrir venju að gefa þeim sem voru í neyð gjafir og fór leynt með það. Þetta varð síðar kveikjan að jólasveininum eins og mörg okkar þekkja hann í dag.

Hann lést í Myra, sem er nú Antalya-héraðið í Tyrklandi. Ítalskir kaupmenn smygluðu beinum hans þaðan til Ítalíu í kringum 1087. Beinunum var síðan dreift um mörg Evrópulönd

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab