Vill virkja meira og draga úr olíunotkun
„Það eru stórkostleg tækifæri fyrir Ísland að framleiða sína eigin orku í stað þess að flytja inn olíu,“ segir Helgi Hjörvar í samtali við Morgunblaðið, en hann hefur starfað að orkumálum um langa hríð.
Helgi segir því fráleitt að frá því fyrir Parísarsamkomulagið árið 2015 skuli framleiðsla rafmagns á hvern íbúa landsins hafa minnkað, eins og hann benti á í grein í Morgunblaðinu sl. fimmtudag, og að á sama tíma vaxi notkun á olíu.
„Þeirri öfugþróun verðum við að snúa við og það er fagnaðarefni að stjórnvöld séu að reyna að einfalda þetta flóknasta leyfisveitingakerfi í heimi. En skilningur ráðherra á því, hvort sem það er Jóhann Páll eða Guðlaugur Þór, dugar ekki einn og sér. Það virðist að sumu leyti vera eins og við höfum sætt okkur við stöðnun allt of lengi í raforkumálum, af því að við erum farin að trúa því að við þurfum ekki að gera neitt af því við erum best í heimi í,“ segir Helgi.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗