Landsliðskonan lagði upp í markaleik

Katla Tryggvadóttir.

Katla Tryggvadóttir. mbl.is/Ólafur Árdal

Landsliðskonan Katla Tryggvadóttir lagði upp eitt marka Fiorentina í 4:3-sigri á Como í 8. umferð A-deildar Ítalíu í fótbolta í dag.

Gestirnir í Como komust tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en Fiorentina skoraði næstu fjögur mörk leiksins. Hin norsk-íslenska Íris Ómarsdóttir kom Fiorentina í 3:2 á 53. mínútu og Katla lagði upp fjórða mark liðsins rúmlega tuttugu mínútum síðar.

Katla fékk svo gult spjald á 83. mínútu og fór af velli í uppbótartíma. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab