Myndskeið: Messi heppinn að sleppa með rautt

Lionel Messi.

Lionel Messi. AFP/JC Ruiz

Lionel Messi leikmaður Inter Miami í bandarísku MLS deildinni í fótbolta var heppinn að sleppa við rautt spjald í nótt.

Messi og félagar töpuðu illa gegn Columbus Crew, 3:0, í fyrri viðureign liðanna í 16- liða úrslitum. 

Inter Miami missti mann af velli þegar Gonzalo Lujan fékk sitt seinna gula spjald á 36. mínútu og Messi var svo heppinn að sleppa við rautt þegar hann kastaði viljandi bolta í höfuð andstæðings í stað þess að taka innkast í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Messi slapp með sprekkinn og fékk aðeins gult spjald líkt og Gonzalo Tapia leikmaður Columbus Crew.

Hér að neðan má sjá myndskeið af atvikinu.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab