Heldur áfram að skora í Danmörku
Emelía Óskarsdóttir skoraði tvennu í 5:1-sigri Köge á Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Emelía skoraði fyrstu tvö mörk leiksins í fyrri hálfleik. Emelía er nú þriðji markahæst í deildinni með níu mörk
Köge er á toppnum með 41 stig, sjö stigum meira en Nordsjælland.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗