Þrívíddarprentuð vopn áhyggjuefni í Svíþjóð

Þrívíddarprentað vopn sem sænska lögreglan lagði hald á í Landskrona-málinu í fyrra. Ári síðar prenta menn út hríðskotabyssur og panta íhlutina á Alibaba. Ljósmynd/Sænska lögreglan

Nýjar útgáfur af hálfsjálfvirkum þrívíddarprentuðum vopnum hafa skotið upp kollinum á sænska markaðnum og er þarlend lögregla uggandi yfir þróuninni.

Teikningum af vopnum þessum er nú dreift um almenninga lýðnetsins ásamt myndbandsleiðbeiningum og upplýsingum um hvar hægt sé að kaupa aukahluti í þau.

Sú var tíðin að þrívíddarprentuð vopn voru einföld og einnota, þau þurfti að endurhlaða eftir hvert skot, sjálfvirkni eða hálfsjálfvirkni var ekki til að dreifa. Í ofanálag gátu þau sprungið fyrirvaralaust og stórskaðað væntanlega notendur fremur en skotmörk þeirra.

En þá var öldin önnur er Gaukur bjó á Stöng og nú hafa nýjar gerðir litið dagsins ljós, meðal annars FGC-9, hálfsjálfvirkt vopn með skothylki sem getur hleypt af mörgum skotum í röð án þess að eyða þurfi tíma í að hlaða vopnið handvirkt eftir hvert skot.

155 útprentuð skotvopn haldlögð

Eftir því sem sænska lögreglan greinir frá hefur hún nú lagt hald á 155 þrívíddarprentuð vopn frá árinu 2022 að telja og af þeim eru 54 af gerðinni FGC-9. Þá eru ótaldir þeir vopnahlutar sem lagt hefur verið hald á að auki.

Í leiðbeiningunum á netinu má finna tengla er vísa á íhluti sem hægt er að kaupa af kínverskum vefsíðum, þar á meðal Alibaba sem er Evrópubúum kunnur verslunarvettvangur fyrir öllu hættuminna glingur.

Hefur sænska ríkisútvarpið SVT hefur leitað viðbragða hjá Alibaba með tölvupósti en ekki fengið þaðan svör.

SVT

SVT-II (SVT skoðar vopnin betur – myndskeið)

SVT-III (Landskrona-dómurinn í janúar)

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab