Andri Lucas áfram sjóðheitur
Framherjinn Andri Lucas Guðjohnsen er óstöðvandi þessa dagana en hann skoraði fyrra mark Blackburn í 2:2 jafntefli á útivelli gegn Burnley í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag.
Burnley komst yfir á 27. mínútu en Andri Lucas jafnaði metin fjórum mínútum síðar. Heimamenn komust aftur yfir á 51. mínútu en Andri Lucas fiskaði vítaspyrnu á 74. mínútu sem Todd Cantwell skoraði úr.
Andri var svo óheppinn að ná ekki að skora sigurmark Blackburn en skot hans small í stönginni.
Andri er nú kominn með ellefu deildarmörk og er næstmarkahæsti maður deildarinnar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗