Undarleg hegðun stórstjörnu - „Djöfull er ég feginn“
Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni, sem kemur út alla föstudaga.
Mykhailo Mudryk, leikmaður Tottenham á láni frá Chelsea, hefur látið gamminn geisa undanfarið um hitt og þetta. Hjólaði hann í úkraínska knattspyrnusambandið og kenndi því um að hafa fallið á lyfjaprófi sem varð til þess að hann fór í tveggja ára bann. Þá sagði hann að það væri draumur sinn að spila fyrir Arsenal, þó svo að hann sé á mála hjá erkifjendunum.
„Djöfull er ég feginn að Arsenal hafi ekki farið í þessi kaup 2023,“ sagði Helgi, en Mudyk var næstum genginn í raðir Skyttanna í janúar 2023 áður en Chelsea stökk til og nappaði honum.
„Svo hefði hann kannski bara verið geggjaður hjá Arsenal. Það eru hæfileikar þarna,“ sagði Hörður hins vegar.
Leandro Trossard kom þess í stað til Arsenal og skoraði til að mynda afar mikilvægt mark í vor á leið liðsins að fyrsta Englandsmeistaratitlinum í 22 ár.
„Maður veit aldrei en Trossard, sem kom í staðinn, var helvíti flottur þjónn,“ sagði Helgi.
Þátturinn er í spilaranum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗