Lagði upp sigurmarkið

Kristian Nökkvi Hlynsson.

Kristian Nökkvi Hlynsson. mbl.is/Karítas

Kristian Nökkvi Hlynsson átti góða innkomu í liði Twente í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag í 2:1-sigri liðsins á Willem II.

Gestirnir komust yfir í upphafi síðari hálfleiks en heimamenn jöfnuðu fljótlega og var staðan 1:1 þegar Kristian kom inn á völlinn á 73. mínútu.

Níu mínútum síðar lagði hann upp sigurmarkið fyrir Marko Pjaca. Kristian átti góða fyrigjöf inn á vítateiginn þar sem Pjaca skallaði boltann í netið.

Með sigrinum fór Twente upp í þriðja sæti deildarinnar, liðið er stigi á eftir Ajax og tveimur stigum á eftir toppliði PSV.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab