Le Pen segist ekki tengjast lekamáli

Marine Le Pen segist ekki hafa fengið trúnaðarupplýsingar.

Marine Le Pen segist ekki hafa fengið trúnaðarupplýsingar. AFP

Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar, neitar því að hafa fengið trúnaðarupplýsingar frá embættismanni sem grunaður er um að hafa lekið upplýsingum um rannsóknir til flokks hennar.

Le Pen segist þó ekki geta sagt til um það hvort aðrir flokksfélagar hafi notið góðs af meintum leka embættismannsins. 

Embættismaðurinn sem liggur undir grun, Hugues Moutouh, er fyrrverandi háttsettur embættismaður í innanríkisráðuneytinu. Hann hefur gegnt embætti héraðsstjóra í Centre-Val de Loire-héraði en greindi frá því í gær að hann hefði óskað eftir því að verða leystur frá störfum.

Moutouh er ásakaður um að hafa lekið upplýsingum úr rannsókn á meintri ólöglegri fjármögnun kosningabaráttu Þjóðfylkingarinnar. Le Pen var sakfelld fyrir fjárdrátt úr sjóðum Evrópuþingsins í fyrra. 

Forsetakosningar í Frakklandi fara fram í upphafi næsta árs og hyggst Le Pen fara fram en samkvæmt könnunum nýtur hún mests fylgis. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab