Trump fór mikinn í nótt og birti 35 færslur um fundinn við Pútín og Jinping
Donald Trump Bandaríkjaforseti er mjög lukkulegur með stóra fundinn sem hann átti með Xi Jinping og Vladimír Pútín í Kína á dögunum. Þetta var í fyrsta sinn sem leiðtogar ríkjanna þriggja funduðu með þessum hætti.
Leiðtogarnir funduðu í 90 mínútur og gáfu svo út sameiginlega friðaryfirlýsingu þar sem varað var við afleiðingum kjarnorkustríðs. Eftir sem áður eiga Rússar enn í stríði við Úkraínu og hafa gagnrýnendur sagt að fátt hafi komið bitastætt úr fundinum sem hafi helst verið ætlað að láta leiðtogana þrjá líta vel út.
Trump er þó ljómandi sáttur við þetta og fór mikinn í nótt og í dag á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, þar sem hann deilir myndum frá fundinum, bæði raunverulegum og frá gervigreindinni. Á innan við klukkustund birti hann 35 færslur til að fagna fundinum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗