Tryggvi drjúgur í naumum sigri Bilbao
Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik þegar Bilbao vann Baskonia 84:80 í efstu deild spænska körfuboltans í Bilbao í dag.
Tryggvi Snær skoraði 18 stig, tók 6 fráköst, gaf 2 stoðsendingar og stal einum bolta á þeim 27. mínútum sem hann lék.
Bilbao er í 9. sæti deildarinnar en liðið er með 10 stig líkt og þrjú önnur lið í 6. til 8. sæti.
Tryggvi Snær og félagar í íslenska landsliðinu mæta Bosníu í Laugardalshöll næstkomandi fimmtudag og Ísland mætir síðan Tyrklandi í Istanbúl sunnudaginn 29. nóvember.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗