„Við viljum njóta birtunnar án þess að ljósgjafinn stingi í augun“

Örn Erlendsson lýsingarhönnuður.

Örn Erlendsson lýsingarhönnuður. Samsett mynd

Góð lýsing snýst um fleira en val á fallegum lömpum. Örn Erlendsson lýsingarhönnuður segir frá því sem skiptir máli og einföldum leiðum til að bæta birtuna heima. Hún hefur áhrif á líðan og lífsgæði fólks. Það endurspeglast í breytingum á byggingarreglugerð þar sem nú hafa í fyrsta sinn verið sett heildstæð ákvæði um ljósvist. Þau skilgreina markmið og kröfur um dagsbirtu, raflýsingu, ljósmengun og útsýni og marka mikilvægt skref í átt að heilnæmara, öruggara og aðgengilegra umhverfi.

Ákvæðin gilda nú þegar um framkvæmdir sem byggjast á deiliskipulagi sem samþykkt var eftir 1. maí 2026. Frá og með 1. ágúst 2027 munu þau gilda um allar framkvæmdir sem sótt er um byggingarleyfi fyrir.

Örn Erlendsson, lýsingarhönnuður og einn eigenda Lisku ehf., sem sérhæfir sig í lýsingar- og raflagnahönnun, segir nýju ákvæðin setja skýrari kröfur um dagsbirtu, útsýni, raflýsingu, ljósmengun og virkni og viðtökuprófanir lýsingarkerfa. Sýna þurfi fram á að kröfurnar séu uppfylltar í greinargerð sem fylgir hönnunargögnum. Við mat á dagsbirtu þarf nú að taka tillit til þess sem skert getur birtuna, svo sem, glers, afskermandi byggingarhluta, höfuðátta og umhverfis.

„Þetta hefur í för með sér að dagsbirta er skoðuð strax við skipulag byggðar og mótun íbúða. Stærð og staðsetning glugga, dýpt rýma og bil milli húsa skipta þar miklu máli.“

Árið 2014 lauk Örn meistaragráðu í byggingarverkfræði frá KTH í Stokkhólmi. Lokaverkefni hans fjallaði um bestun á hönnun ljósgarða (e. atria) með tilliti til tímaháðrar hermunar á dagsbirtu. „Þar kviknaði áhugi minn á ljósvist. Nokkrum árum síðar hóf ég störf hjá Lisku þar sem ég hef komið að fjölda ólíkra og spennandi verkefna tengdra ljósvist.“

Við hönnun útilýsingar þarf að huga bæði að ásýnd bygginga og umhverfinu. Örn leggur áherslu á að ljósinu sé beint þangað sem þess er þörf. Ljósmynd/Aðsend

En hvað felst í hugtakinu ljósvist?

„Ljósvist er þverfaglegt hugtak sem tengir saman verkfræði, líffræði og arkitektúr. Hugtakið lýsir sjónskilyrðum og upplifun út frá eiginleikum sem saman mynda ljósvist, svo sem birtu, litarhitastigi, ljóma, glýju, litarendurgjöf, flökti, myrkurgæðum og fleiru,“ segir Örn.

„Góð ljósvist á heimili felst í þægilegri, lagskiptri lýsingu sem dregur fram karakter heimilisins, skapar ró og notalegt andrúmsloft, en gefur einnig kost á nægri birtu fyrir ólíkar athafnir, svo sem matseld eða heimilisþrif. Með samspili beinnar og óbeinnar lýsingar ásamt stýringum má skapa jafnvægi milli upplifunar og praktískrar lýsingar heimilisins.“

Dagsbirtan hjálpar líkamsklukkunni

Dagsbirtan hefur áhrif á bæði líðan fólks og líkamsklukkuna, að sögn Arnar. „Flest finnum við hvað dagsbirtan getur skipt miklu fyrir líðan, ekki síst hér á landi þar sem skammdegið er langt. Hún hefur líka líffræðileg áhrif, meðal annars með því að hjálpa líkamsklukkunni að halda takti.“

Því sé mikilvægt að huga að dagsbirtunni við hönnun heimila. „Dagsljósið breytist með tíma dags, árstíðum og veðri og gefur rýmum líf. Mér finnst því mikilvægt að þau rými sem við notum mest njóti góðrar dagsbirtu, en að við getum líka dregið fyrir þegar sólin verður óþægileg. Góð nýting á dagsbirtu gerir það að verkum að nýta má hana sem aðalljósgjafa og draga þannig úr orkunotkun.“

Hvernig fara dagsbirtugreiningar fram og hvernig geta þær hjálpað til við að tryggja góða birtu í íbúðum?

„Við einfaldar aðstæður má nota töfluaðferð en í flóknari tilvikum er greining framkvæmd samkvæmt ÍST EN 17037. Þá er unnið með þrívítt tölvulíkan af byggingunni og umhverfinu auk þess sem raunveruleg veðurgögn eru notuð. Niðurstöður gefa skýra mynd af því hvernig dagsbirta dreifist og hvort viðmið séu uppfyllt.

Dagsbirtugreiningar hjálpa því hönnuðum að móta byggingarkroppa og rýmisskipulag, auk þess að skilgreina glugga- og efnisval með tilliti til dagsbirtuviðmiða. Slíkar greiningar eru því mikilvægur liður í því að tryggja góða dagsbirtu í íbúðum.“

Hvað skiptir mestu máli þegar kemur að því að nýta dagsbirtu á heimilum, til dæmis varðandi glugga, skipulag rýma og efnisval?

„Gluggastærð og staðsetning skipta auðvitað máli en líka hversu djúp rýmin eru. Háir gluggar koma birtunni lengra inn í rými en það þarf líka að skoða hvað skyggir á þá. Ljós, loft og veggir hjálpa til við að dreifa birtunni en glerið sjálft skiptir einnig máli, bæði hversu miklu ljósi það hleypir í gegn og hvernig það takmarkar sólarhita. Þetta þarf að skoða út frá því í hvaða átt gluggarnir snúa, svo íbúðin verði björt án þess að ofhitna.“

Ólíkar áskoranir eftir árstíðum

Mikill munur á birtuskilyrðum eftir árstíðum skapar sérstakar áskoranir við lýsingarhönnun hér á landi.

„Á Íslandi felst áskorunin í að mæta mjög ólíkum birtuskilyrðum eftir árstíðum. Nýta þarf dagsbirtuna vel, enda skammdegið langt og sólin lágt á lofti stóran hluta ársins. Því þarf að huga að skuggavarpi bygginga svo næg birta berist bæði inn í íbúðir og í rýmin milli húsanna. Á sumrin þarf svo að geta myrkvað svefnherbergi svo birta trufli ekki svefn.

Í skammdeginu logar lengur á raflýsingu. Innandyra þarf hún að henta daglegum athöfnum, vera þægileg og auðvelt að draga úr birtunni á kvöldin. Utandyra viljum við draga fram byggingar og tryggja öryggi en um leið varna því að óþarfa lýsing spilli myrkri næturhimins, trufli nágranna eða hafi neikvæð áhrif á umhverfið. Í því samhengi er sérstaklega mikilvægt að beina ljósinu þangað sem þess er þörf og deyfa eða slökkva þegar það er óþarft.“

Örn segir gott að bæta raflýsingu við þar sem dagsbirtan nægir ekki og nýta stýringar til að laga lýsingu að þörfum. „Til dæmis má stýra ljósum eftir svæðum í rýminu með tilliti til fjarlægðar frá glugga. Nota má hefðbundna ljósarofa, nýta dagsbirtunema, tímastillingar eða hreyfi- og viðveruskynjara til að slökkva á lýsingunni þegar ekki er þörf á henni.“

Örn bendir einnig á að lýsing á heimilum sé oft of einhæf, en hana megi bæta með einföldum breytingum án mikils tilkostnaðar. „Algengt er að öll lýsing komi úr loftinu og lítið svigrúm sé til að breyta stemningunni. Sýnilegar, bjartar perur geta líka valdið glýju, jafnvel í fallegum lömpum. Við viljum njóta birtunnar án þess að ljósgjafinn stingi í augun.

Borð- og gólflampar með góðri afskermun geta breytt miklu. Það má líka bæta vinnulýsingu þar sem hennar er þörf, nota óbeina lýsingu og leyfa öðrum svæðum að vera dimmari. Skuggar gefa rýminu dýpt,“ segir hann og heldur áfram:

„Oft nægir að skipta um perur, færa lampa eða bæta við dimmum. Snjallperur eða þráðlausar stýringar geta verið einföld lausn í völdum lömpum. Þegar kemur að því að velja ljósgjafa ætti að minnsta kosti að huga að litarhitastigi (K), litarendurgjöf (CRI) og ljósstreymi (lm).“

Að hverju ætti fólk sérstaklega að huga varðandi birtu og lýsingu þegar það skoðar fasteign til kaupa eða hyggst ráðast í endurbætur?

„Þegar fasteign er keypt er ágætt að horfa á allan fastan ljósabúnað. Veldur lýsingin glýju? Flöktir lýsingin? Er sama litarhitastig alls staðar? Er næg birta á vinnusvæðum? Er lýsingin dimmanleg? Hvernig ljósgjafar eru? Er auðvelt að endurnýja ljósgjafa eða annan búnað? Er suð í dimmum eða spennum? Hvernig er útilýsingin?

Fyrir endurbætur er gott að skilgreina þarfir áður en lampar og lýsingarbúnaður eru valin. Hvar þarf vinnulýsingu, hvar þarf óbeina lýsingu, hvar á að slaka á og hvernig á að stjórna ljósunum? Stutt ráðgjöf snemma getur komið í veg fyrir dýrar breytingar síðar,“ segir Örn í lokin.

Örn hefur komið að fjölmörgum spennandi verkefnum, meðal annars lýsingarhönnun í Bryggjuhúsinu og Hallgrímskirkju. Ljósmynd/Aðsend

Stærð og staðsetning glugga, dýpt rýma og það sem skyggir á húsið hefur áhrif á dagsbirtuna innandyra. Örn segir mikilvægt að huga að þessum þáttum snemma í hönnunarferlinu. Ljósmynd/Aðsend

Lýsing Arnar skapar huggulega stemningu á Bryggjuhúsinu.

Lýsing Arnar skapar huggulega stemningu á Bryggjuhúsinu. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab