Féll í yfirlið í miðju viðtali
Argentínumaðurinn Leandro Parades féll í yfirlið í viðtali eftir sigur Boca Juniors gegn Atletico- MG í Meistaradeild Suður-Ameríku í knattspyrnu í nótt.
Paredes, sem er fyrirliði Boca Juniors, fór af velli snemma í seinni hálfleik og eftir sigur sinna manna hneig hann niður í miðju viðtali.
Hann stóð síðan upp skömmu seinna og gekk til liðsfélaga sinna þar sem hann fagnaði titlinum með þeim.
Hann staðfesti síðan á samfélagsmiðlum sínum að ekkert alvarlegt hefði orsakast og það hefði verið hitinn sem hefði gert hann svimaðan, en leikurinn fór fram í Kólumbíu þar sem hitastigið náði allt að 32 gráðum selsíus.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗