Afhjúpa hvað stóð í bréfi Trump til Biden
Pressan
Sunnudaginn 22. nóvember 2026 15:30
Loksins er komið fram hvað stóð í bréfinu frá Trump.
Þegar Joe Biden tók við forsetaembættinu af Donald Trump í janúar 2021 var Trump ekki viðstaddur. Hann kaus að koma sér á brott frá Washington áður en Biden tók við. En Trump skildi eftir bréf til Biden í Hvíta húsinu. Biden hefur ekki viljað skýra frá því hvað stóð í bréfinu en nú gerir hann það í nýrri endurminningabók sinni „Promise Me, America“ sem er nýkomin út.
New York Times skýrir frá þessu og segir að Trump hafi skrifað:
„Margir forsetar hafa komið og farið. Þeir stýrðu sem Repúblikanar eða Demókratar. Þeir breyttu ekki sögunni mikið, þeir sópuðust bara með miskunnarlausum straumnum. Það mun ekki koma fyrir þig. Ég veit hversu heitt þú elskar bandarísku þjóðina.“
Biden segir í bókinni að hans upplifun sé að það séu tvær útgáfur af Trump og bendir á að Trump hafi ekki viljað vera viðstaddur innsetninguna í forsetaembættið en hafi um leið skrifað hlý orð „sem voru eins og þau hefðu komið frá gömlum vini“.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗