Björn Jón skrifar: Stjórnglæpamennirnir

Sænski hagfræðingurinn Gustaf Cassel (1866–1945) sagði eitt sinn að skipulagning efnahagsmála yrði ætíð skref í átt til einræðis vegna þess að reynslan hefði sýnt að embættismenn þeirra stofnana sem færu með eftirlit og úthlutun í haftakerfi megnuðu aldrei að sinna svo margþættu verkefni „án þess að verða flæktir inn í baráttu milli andstæðra hagsmuna, en afleiðingin verður siðspilling, sem endar í einræði flokks eða einstaklings“.

Þetta voru raunar engin ný sannindi á fyrri hluta síðustu aldar, Adam Smith hafði varað við skipulagshyggju í efnahagsmálum þegar árið 1790. Menn létu sem verið væri að hreyfa taflmenn á skákborði. Taflmennirnir stjórnuðust ekki af öðru en hendi skákmannsins, en aftur á móti „á hinu mikla skákborði mannlífsins hreyfir hver einstakur hlutur sig sjálfur, og sú hreyfing er önnur en sú, sem valdsmaðurinn kann að reyna að fá þá til“. Þær margháttuðu tilraunir sem gerðar voru hér á landi til áætlunarbúskapar á liðinni öld leiddu af sér stöðnun og samdrátt — að ekki sé minnst á spillinguna sem varð svo megn að lýðræðinu var jafnvel hætta búin.

Ekki hægt að treysta pólitíkusum

Mér hafa verið þessi mál talsvert hugstæð síðustu misseri þar sem ég geri þeim allnokkur skil í nýútkominni bók minni Veraldarvafstri sem er saga fegðanna Sveins B. Valfells og Sveins Valfells. Sveinn eldri (1902–1981) var einn kunnasti athafnamaður þjóðarinnar á sinni tíð, stofnaði Vinnufatagerðina og Steypustöðina, var stærsti hluthafinn í Loftleiðum og kom nærri margvíslegum öðrum atvinnurekstri en lengst af í efnahagskerfi sem fast var í viðjum margvíslegra hafta.

Jónas H. Haralz hagfræðingur var náfrændi Sveins. Þegar Jónas leit eitt sinn yfir farinn veg orðaði hann það svo að sérfræðingar jafnt sem stjórnmálamenn hefðu á fyrstu árunum eftir síðari heimsstyrjöld lokast inni í kerfi hafta og ríkisafskipta. Athygli sérfræðinganna hefði beinst að því „að reka þetta kerfi á eins ábyrgan og hagkvæman hátt og tækifæri gáfust til, en ekki að losna við kerfið, en það töldu þeir ekki framkvæmanlegt við ríkjandi aðstæður“. Hugmyndir um aukið frelsi í efnahagsmálum hefðu fyrir ráðamönnum virst barnalegar, óraunsæjar og bera vott um þröngsýni.

Verslunarhöftum fylgir óhjákvæmilega hvers kyns neðanjarðarstarfsemi því fylgi menn lögum og reglum til hins ítrasta í slíku kerfi eiga þeir á brattann að sækja. Eitt og annað geta menn þó gert á skjön við kerfið án þess að það teljist allt beinlínis ólöglegt. Ég fjalla til að mynda í bókinni um „rekstur“ eins konar „prívatbanka“ sem ýmsir atvinnurekendur hér í bæ komu að, þeirra á meðal Sveinn B. Valfells. Þar lögðu þeir inn reiðufé, sem þeir höfðu handbært hverju sinni, og lánuðu svo hver öðrum gegn víxlum eða öðrum verðmætum þegar mönnum lá á og ekki var hægt að fá fé að láni í ríkisbönkunum. Þekktur kaupmaður í Bankastrætinu var „bankastjóri“ og sá um að allt færi vel fram. Vextir voru hinir sömu og í ríkisbönkunum, þannig að ekki var um okurlán að ræða. Engin lög bönnuðu mönnum að lána vinum sínum í vandræðum fé, ef þeir voru sjálfir aflögufærir en öll þessi viðskipti fóru fram í íslenskum krónum.

Hafi þessi starfsemi verið ólögleg má velta því upp hversu siðleg hin löglega bankastarfsemi var. Sveinn Valfells yngri, sem fæddur er 1941, minnist þess þegar hann fjórtán ára gamall uppgötvaði að búið var að stela af honum stórum hluta sparifjár hans með verðbólgu og neikvæðum raunvöxtum. Ábyrgðina bæru „stjórnglæpamenn“ eins og hann kallar þá. Kjörorðið „græddur er geymdur eyrir“ voru örgustu öfugmæli. Hann segir þetta hafa verið góða lexíu: að treysta ekki stjórnmálamönnum.

Heimskan er bölvaldur mannanna

Stjórnlyndir pólitíkusar fyrri ára hófu umfangsmikinn atvinnurekstur ríkis og bæja. Þegar þeim var endanlega orðið ljóst að hið opinbera væri ófært um að reka fyrirtæki af skynsamlegu viti breyttu hinir stjórnlyndu um kúrs og boðuðu stóraukna skattheimtu sem ekki sér fyrir endann á. Nú er það viðhorf ríkjandi í stjórnmálunum að sé einhver „aflögufær“ fái hann ekki að njóta afraksturs erfiðis síns heldur eigi ríkisvaldið heimtingu á vænum hluta þess ávinnings sem stritað var fyrir. Á sama tíma þenst hið opinbera út sem aldrei fyrr; því þó svo að blessunarlega hafi verið komið á frjálsum viðskiptaháttum á flestum sviðum og ríkið að mestu látið af fyrirtækjarekstri hefur skattpíning aukist mikið og annar opinber rekstur þanist út.

Æ oftar hitti ég hæfileikaríkt ungt fólk sem stefnir að því að komast í hlýjan faðm ríkisvaldsins í stað þess að starfa í einkageiranum hvað þá taka þá áhættu að fara út í eigin rekstur. Og ekki að undra þegar fólki og fyrirtækjum er gert sífellt erfiðara fyrir að athafna sig með hærri sköttum og íþyngjandi regluverki. Við segjum í bókinni nýlega sögu af því hvernig embættismenn Reykjavíkurborgar töfðu framgang nauðsynlegra úrbóta á stórri fasteign af tómum geðþótta, en með óþarflega íþyngjandi málsmeðferð, reglum og skilyrðum er í raun búið að færa ráðstöfunarrétt fasteignaeigenda yfir til embættismanna opinberra stofnana. Embættismennirnir virðast margir hverjir litla hugmynd hafa um hvernig hagkvæmast sé að ráðstafa húsnæði. Það dregur þó ekki úr vilja þeirra til að hafa miklar skoðanir á því hvernig og með hvaða hætti starfsemi skuli þar háttað. Ákvarðanir embættismanna geta hæglega gert það að verkum að mun minni afrakstur verður af fjárfestingum — jafnvel þannig að rekstur standi ekki undir sköttum og öðrum gjöldum. Eigandinn þarf líka að fá fjárfestinguna til baka. Því er ekki að undra að fjölmörg fyrirtæki og fasteignaeigendur hafi flúið Reykjavíkurborg á umliðnum og borgin þar með orðið fátækari af athafnalífi.

Sveinn B. Valfells aðhylltist það lífsviðhorf að maðurinn ætti sér aðeins einn höfuðóvin en það væri hans eigin heimska. Heimskan væri aðalhindrunin á þroskabraut mannkynsins. Heimskan birtist okkur meðal annars í óhóflegu regluverki og skattheimtu sem tálmar eðlilegt frjálst framtak og þar með verðmætasköpun. Þeir stjórnmálamenn sem börðust fyrir frjálsræði í atvinnuháttum og efnahagslífi voru eitt sinn réttilega nefndir frjálslyndir. Það hugtak er raunar orðið fullkomlega merkingarlaust enda gjarnan hinir stjórnlyndustu pólitíkusar sem skreyta sig með frjálslyndistali. Sjálft tungumálið er orðið gerspillt.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab