Hvorki heyrst „hósti né stuna“ frá stjórnvöldum
„Ég lýsi því eftir stuðningi íslenskra stjórnvalda við fyrirtæki sem er nauðsynlegur stafrænn innviður samkvæmt skilgreiningu ríkisins,“ segir Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri íslenska vefhýsingarfyrirtækisins 1984 ehf.
1984 varð fyrir umfangsmikilli tölvuárás erlendra tölvuþrjóta á dögunum, en tilgangur árásarinnar virðist hafa verið að eyðileggja vefsíður sem voru til stuðnings Palestínu.
Gagnrýnir aðgerðarleysi stjórnvalda
Tölvuþrjótunum tókst að eyðileggja sjö slíkar vefsíður áður en framganga þeirra var stöðvuð.
Þeir beindu spjótum sínum helst að vefhýsingarfyrirtækinu sjálfu sem og viðskiptavinum þess sem eru í virkri baráttu fyrir Palestínu. Að sögn Marðar voru önnur gögn látin vera.
Mörður gagnrýnir aðgerðarleysi stjórnvalda í kjölfar netárásarinnar, en hvorki hefur heyrst „hósti né stuna“ frá yfirvöldum.
„Það er gerð stórfelld árás, líklega af erlendu ríki, á nauðsynlega innviði okkar ríkis og það minnist enginn stjórnmálamaður á þetta. Við þjónum mjög mörgum Íslendingum og starfið er mjög mikilvægt fyrir íslenskt atvinnulíf. Við erum sett undir þann hatt að vera ómissandi stafrænn innviður fyrir ríkið. Svo þegar ráðist er á okkur af pólitískum ástæðum, á vegum erlends ríkis, þá heyrist ekkert.“
Mörður segir tölvuárás sem þessa gríðarlega þungbæra fyrir fyrirtækið, en 1984 mun þurfa að standa undir margra milljóna króna kostnaði vegna viðgerða. „Það er fólk í vinnu hérna allan sólarhringinn í margar vikur. Við þurfum ekki einhverjar innihaldslausar yfirlýsingar, við þurfum hjálp.“
Opna fyrir tölvupóstinn í dag
Hann heldur áfram: „Það er að koma í ljós að þrjótarnir náðu að sækja sér svolítið af okkar innri gögnum og eru að reyna að nota þau hér og þar. Við stoppuðum það,“ segir Mörður um nýjustu vendingar málsins.
Að sögn Marðar stendur tiltekt nú yfir. „Við þurfum að gefa viðskiptavinum okkar tækifæri til þess að taka afstöðu til álitamála áður en við keyrum aftur upp sumar tegundir af þjónustu.“
Stefnt er að því að opna fyrir tölvupóstasamskipti 1984 á ný í dag. „Við erum búin að tryggja það að DNS-þjónustan hefur allan tímann verið uppi. Hún var eina þjónustan sem ekki lá niðri. En tölvupósturinn opnar vonandi í dag,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗