Vilja kanna byggingu námsmannaíbúða samhliða heimavist

Frá Selfossi.

Frá Selfossi. mbl.is/Sigurður Bogi

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga vilja kanna hvort hagkvæmt sé að byggja námsmannaíbúðir á Selfossi samhliða nýrri heimavist við Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Hugmyndin er að á sama svæði yrðu sérstök heimavist fyrir framhaldsskólanema og sjálfstæðar námsmannaíbúðir. Rekstur, umsjón og aðgangur yrðu aðgreind, meðal annars vegna þess að hluti heimavistarbúa yrði undir 18 ára aldri.

Þetta kemur fram í umsögn samtakanna sem birt var á vef Alþingis 20. nóvember. Samtökin vilja kanna samstarf milli framhalds- og háskólastigs og við Byggingafélag námsmanna eða sambærilegt félag. Sameiginleg uppbygging gæti að þeirra mati nýtt lóð og innviði betur og gert kleift að byggja í áföngum.

Vilja bera saman fjármögnunarleiðir

Eins og mbl.is greindi frá 4. nóvember hafa Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og þrír aðrir þingmenn lagt fram þingsályktunartillögu um varanlega heimavist við skólann.

Þau leggja til að heimavistin verði byggð í samstarfi opinberra aðila og einkaaðila. Hið opinbera myndi gera langtímaleigusamning um afnot nemenda af húsnæðinu yfir skólaárið og það yrði nýtt til gistingar fyrir ferðamenn á sumrin. Engin heimavist er í boði á yfirstandandi skólaári eftir að ítrekuð leit skilaði ekki viðeigandi húsnæði.

Samtökin styðja uppbyggingu varanlegrar heimavistar og vilja bera saman ólíkar leiðir áður en tekin verður ákvörðun um samstarf við einkaaðila. Við þann samanburð verði meðal annars litið til kostnaðar yfir líftíma verkefnisins, eignarhalds og fjárhagslegrar ábyrgðar ríkis og sveitarfélaga.

Skólanefnd FSu telur fullreynt að leysa vandann með leigu á húsnæði sem þegar er til og vill að heimavistin verði byggð á skólalóðinni eða í næsta nágrenni.

Vilja meta þörfina að nýju

Milli 13 og 20 nemendur á önn nýttu bráðabirgðaheimavistina á skólaárunum 2021–2022 til 2025–2026. Í eldra þarfamati var miðað við að heimavistin rúmaði að minnsta kosti 30 til 40 nemendur.

Samtökin benda á að takmarkað rými og þjónusta í bráðabirgðahúsnæðinu kunni að hafa haft áhrif á eftirspurn. Þau vilja því uppfæra þarfamatið áður en ákveðið verður hversu stór heimavistin verður og hvaða þjónusta verður þar í boði.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab