Ásar ganga frá 13,7 milljarða kaupum

Endanlegt kaupverð hlutafjár nam 13.681 milljón króna.

Endanlegt kaupverð hlutafjár nam 13.681 milljón króna. mbl.is/Golli

Ásar hf., móðurfélag Símans, hafa gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands fyrir 13,7 milljarða króna.

Hlutaféð var afhent á föstudag og eru félögin nú hluti af samstæðu Ása.

Endanlegt kaupverð hlutafjár nam 13.681 milljón króna. Af því greiða Ásar 7.228 milljónir króna í reiðufé og afhenda um 418,5 milljónir hluta í félaginu. Þar af eru 280 milljónir nýir hlutir og um 138,5 milljónir koma úr eigin hlutum Ása.

Seljendur, þeirra á meðal sjóður á vegum Vex, hafa skuldbundið sig til að eiga hlutina í að minnsta kosti tvö ár frá afhendingu. 

Heildarvirði félaganna í viðskiptunum nam 13,75 milljörðum króna auk leiguskuldbindinga sem metnar eru á um einn milljarð. Kaupverð hlutafjár var ákvarðað með hliðsjón af hreinum vaxtaberandi skuldum og stöðu veltufjár á viðmiðunardegi. 

Samkeppniseftirlitið setti skilyrði

Samningur um kaupin var undirritaður 18. desember í fyrra og greindi mbl.is frá honum daginn eftir. Móðurfélagið hét þá enn Síminn hf. Hluthafar samþykktu í ágúst að breyta nafni þess í Ása hf. og voru kaupin þá enn til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Eins og mbl.is greindi frá 30. október heimilaði Samkeppniseftirlitið kaupin með skilyrði. Við frummat taldi eftirlitið að sameinað félag gæti haft bæði hvata og getu til að útiloka keppinauta.

Samkvæmt sáttinni mega félögin ekki gera sérkjör á vaktaðri öryggisþjónustu fyrir heimili háð því að heimilin kaupi einnig símaþjónustu eða netþjónustu um fastlínu hjá þeim. Félögin mega þó mæta sambærilegum tilboðum keppinauta. Skilyrðið gildir í fimm ár en getur fallið fyrr úr gildi fari hlutdeild Símans í internettengingum undir tiltekin viðmið.

Áætla um 48 milljarða króna í árstekjur

Opin kerfi sinna meðal annars rekstrar- og hýsingarþjónustu, búnaðarsölu og hugbúnaðarlausnum. Tekjur félagsins námu 7,1 milljarði króna í fyrra. Öryggismiðstöðin veitir öryggis- og velferðarþjónustu og námu tekjur hennar 9,5 milljörðum króna á sama ári.

Ásar stefna að því að kaupin á félögunum tveimur og Greiðslumiðlun Íslands, sem varð hluti af samstæðunni í júlí, skili 600–800 milljóna króna árlegum kostnaðarsparnaði.

Félagið gerir ráð fyrir að sparnaðurinn verði að fullu kominn fram innan tveggja til þriggja ára frá afhendingu.

Ásar áætla að árstekjur samstæðunnar verði um 48 milljarðar króna og að afkoma fyrir vexti, skatta og afskriftir (EBITDA) verði nærri tíu milljörðum króna að meðtalinni væntri samlegð.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab