Segir Sæmund höfund Njálu
Guðni Ágústsson formaður Njálufélagsins upplýsti það á Njáluþingi sem haldið var fyrir troðfullu húsi í Salnum í Kópavogi á föstudag að Sæmundur fróði væri höfundur fornsögunnar Njálu. Sönnunina megi finna í kvæði úr öðru bindi Njálu frá árinu 1889.
Eins og Guðni útskýrir í samtali við Morgunblaðið má rekja upphaf málsins til þess þegar hann var staddur á veitingahúsinu Múlakaffi. Þar fékk Guðni að gjöf bókina Njála í íslenskum skáldskap frá 1958 eftir Matthías Johannessen skáld og fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins.
Á þinginu fór Guðni yfir málið og sagði að í öðru bindi Njálu, sem prentað er í útgáfu Konráðs Gíslasonar frá 1889, væri greinin „Om handskrifterne af Njál“ eftir Jón Þorkelsson. „Í henni eru prentaðar Njáluvísur frá 17. og 18. öld sem ritaðar hafa verið aftan við handritin. Þar er dróttkvæð vísa þar sem því er haldið fram að sjálfur Sæmundur fróði hafi samið Njálu.“
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗