Kviknaði í húsbíl á Sævarhöfða
Innlent | mbl | 22.11.2026 | 14:29
Hjólhýsabyggðin á Sævarhöfða. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Slökkvilið var kallað út að hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða fyrr í dag vegna elds sem kviknaði í húsbíl.
Þetta segir Guðjón Ingason, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Slökkvistarf gekk vel
Að sögn Guðjóns barst tilkynning um eldinn klukkan 12:40 og slökkvistarf gekk vel.
Enginn var í húsbílnum þegar eldurinn kviknaði og engin slys urðu á fólki.
Upptök eldsins liggja ekki fyrir að svo stöddu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗