Messi og félagar í hræðilegum málum
Lionel Messi og Inter Miami eru í bullandi veseni eftir stórt tap gegn Columbus Crew, 3:0, í fyrri viðureign liðanna í 16- liða úrslitum efstu deildar Bandaríkjanna í knattspyrnu í Miami í nótt.
Miami lauk deildarkeppninni í öðru sæti austurhluta deildarinnar með 60 stig, 17 stigum á eftir Nashville sem var í efsta sætinu.
Vegna þess að Miami gekk svona vel í deildinni fékk liðið að fara beint inn í 16 liða úrslit og mætti þá Columbus Crew sem hafnaði í sjöunda sætinu.
Gestirnir pökkuðu hins vegar saman ríkjandi meisturunum þar sem þeir komust yfir á 9. mínútu.
Síðan virtist öll von fara út um gluggann fyrir Miami þegar Gonzalo Lujan fékk sitt seinna gula spjald á 36. mínútu og sjálfur var Messi heppinn að sleppa við rautt þegar hann kastaði viljandi bolta í höfuð andstæðings í stað þess að taka innkast.
Columbus bætti síðan við tveimur mörkum í seinni hálfleik og leikur seinni viðureignina á heimavelli og verður að segjast að Messi og félagar eru í miklum vandræðum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗