Skildi 6 ára dóttur sína eina eftir í röð við verslun í heila nótt – Ætlaði að tryggja sér Pokémonkort

Hversu langt er fólk reiðubúið að ganga til að koma höndum yfir nýjustu Pokémonkortin? Fyrir 35 ára föður frá Suður-Karólínu í Bandaríkjunum endaði leitin að þessum vinsælum safnkortum með handtöku. Ástæðan er að hann skildi sex ára dóttur sína eftir utan við verslun um miðja nótt.

Stúlkan var með teppi og kodda og átti að passa plássið í röðinni. Faðir hennar fór síðan heim.

Fólk, sem var í röðinni, hafði samband við lögregluna að sögn The Washington Post sem segir að þetta hafi gerst við verslun Target í West Ashley í Suður-Karólínu. Þar höfðu Pokémonaðdáendur safnast saman til að tryggja sér nýjustu safnarakortin sem áttu að fara til sölu í búðinni daginn eftir.

Meðal þeirra voru John-Michael Dooley og sex ára dóttir hans. Sjónarvottar sögðu lögreglunni að um klukkan 1 hafi Dooley látið stúlkuna fá teppi og kodda svo hún gæti farið að sofa. Hann yfirgaf síðan röðina þegar stúlkan var sofnuð.

Lögreglan kom á vettvang og handtók Dooley þegar hann kom aftur nokkrum klukkustundum síðar. Hann játaði að hafa farið heim og að hafa skilið dóttur sína eftir í röðinni.

Stúlkunni varð ekki meint af þessu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab