„Afar vonsvikinn“
Erlent | AFP | 22.11.2026 | 14:12
António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagðist í dag vera „afar vonsvikinn“ yfir því að loftslagsviðræðum Sameinuðu þjóðanna í Tyrklandi hefði lokið án samstöðu vegna pattstöðu um jarðefnaeldsneyti.
„Ég deili djúpstæðum vonbrigðum allra þeirra sem væntu þess að ríkisstjórnir myndu standa undir þeim kröfum sem loftslagsváin gerir,“ sagði Guterres í yfirlýsingu.
„Þeir sem hagnast á eyðileggingu plánetunnar okkar mega aldrei ráða skilmálum baráttunnar fyrir björgun hennar. Jarðefnaeldsneyti knýr loftslagsvána áfram.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗