Vilja að gæsluvarðhaldsheimildir gildi ári lengur
Alls eiga sex heimildir til handtöku og gæsluvarðhalds í 115. gr. laga um útlendinga að falla brott þegar ákvæði um vistun í brottfararstöð taka gildi. mbl.is/Karítas
Tilteknar heimildir til að handtaka útlendinga og færa þá í gæsluvarðhald myndu gilda ári lengur en nú er kveðið á um, verði frumvarp um frestun á opnun brottfararstöðvar samþykkt. Þar á meðal er heimild sem beita má þegar það er talið nauðsynlegt til að framfylgja ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið.
Heimildirnar eiga samkvæmt gildandi lögum að falla brott 1. desember 2026, sama dag og brottfararstöðin á að taka til starfa.
Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis leggur til að hvort tveggja færist til 1. desember 2027. Frumvarpið var lagt fram 20. nóvember og er fyrsta umræða á dagskrá Alþingis á morgun.
Vistun taki við í tilteknum tilvikum
Alls eiga sex heimildir til handtöku og gæsluvarðhalds í 115. gr. laga um útlendinga að falla brott þegar ákvæði um vistun í brottfararstöð taka gildi. Þær taka meðal annars til þess þegar óljóst er hver viðkomandi er eða þegar hann hefur ekki sinnt tilkynningarskyldu á meðan mál hans er til meðferðar hjá stjórnvöldum.
Samkvæmt gildandi lögum skal beita vægari úrræðum, svo sem tilkynningarskyldu eða skyldu til að dveljast á tilteknum stað, ef þau duga.
Tvær heimildir í 115. gr. munu gilda áfram eftir að stöðin tekur til starfa. Önnur tekur til þess þegar hegðun útlendings gefur til kynna að hann ógni allsherjarreglu, öryggi ríkisins eða almannahagsmunum. Hin á við þegar lögregla telur útlending ógna þjóðaröryggi og fyrirhugað er að senda hann úr landi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/64/11/1641155.jpg)