Yngstur síðan Gareth Bale

Luca Willams-Barnett var ótrúlegur í gær.

Luca Willams-Barnett var ótrúlegur í gær. AFP/Ben Stansall

Hinn ungi Lucas Williams-Barnett var maður leiksins í sigri Tottenham gegn Ipswich, 2:0, í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær.

Þá skoraði Williams-Barnett fyrra mark Tottenham snemma í fyrri hálfleik og lagði upp það seinna eftir að hafa sýnt frábæra takta áður en hann þrumaði boltanum fyrir markið á Dominic Solanke. 

Var þetta fyrsta mark Williams-Barnett fyrir Tottenham í deildinni og varð hann þar með yngsti leikmaður félagsins í sögunni til að gera það síðan Gareth Bale gerði það gegn Fulham í september 2007.

Williams-Barnett er aðeins 18 ára gamall og kom hann til Tottenham frá uppeldisfélagi sínu, Luton, tíu ára gamall og hefur vakið mikla athygli meðal stuðningsmanna Tottenham með frábærri frammistöðu með unglingaliðum félagsins.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab