Gerðu uppgötvun um Alzheimers sem gæti breytt meðferðinni við sjúkdómnum

Margir eiga ættingja sem hefur smám saman misst minnið af völdum Alzheimerssjúkdómsins. Fram að þessu hefur verið erfitt að halda sjúkdómnum niðri og þeir meðferðarmöguleikar, sem til eru, hafa takmörkuð áhrif á sjálft sjúkdómsferlið.

Vísindamenn við Washington University School of Medicine í St. Louis í Bandaríkjunum hafa prófað nýja nálgun. Þeir lokuðu fyrir viðtaka á T-frumum ónæmiskerfisins sem hafði þær afleiðingar að heilar músa, sem voru notaðar í rannsókninni, nutu verndar.

Í þeim hlutum heilans, sem stýra minninu, var um 40% meiri vefur eftir hjá þeim músum sem fengu þessa meðferð.

Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Neuron.

Lengi vel hefur meðhöndlunin gegn Alzheimers falist í að einblínt hefur verið á tvö prótín sem safnast upp í heilanum. Árangurinn af þessari meðferð hefur ekki þótt mikill.

Þess vegna prófuðu bandarísku vísindamennirnir að beina spjótum sínum að ónæmiskerfinu. Í veikum heila troðast sérstakar ónæmisfrumur, svokallaðar T-frumur, inn og ýta undir dauða heilafruma. Vísindamennirnir gáfu músunum mótefni sem lokaði dyrunum sem T-frumurnar nota til að komast inn í heilann.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab