Eyþór borgaði 16.900 kr. fyrir sæti á tónleikum en aðrir gestir eyðilögðu upplifunina - „Spurning um tillitsemi og virðingu“
Stjórnendaþjálfarinn Eyþór Eðvarðsson er ekki lukkulegur með tónleika sem fóru fram í gær til heiðurs George Michael.
Þrátt fyrir að hafa borgað um 17 þúsund krónur fyrir miðann til að sjá tónleikana endaði Eyþór með að sjá lítið annað en fólkið fyrir framan sig sem hafði staðið upp úr sætum sínum til að dansa. Eyþór skrifar í Facebookfærslu um málið að það sé ekki ósanngjörn krafa að fá að bæði sjá og heyra í listamönnum þegar um slíkt miðaverð sé að ræða.
Eyþór skrifar:
„Við hjónin fórum í Eldborg í Hörpu í gærkvöldi, eins og svo oft áður, til að hlusta á breska hljómsveit flytja lög George Michael. Tónlistin var ágæt og flytjendurnir stóðu sig vel. Vandinn var hins vegar sá að við sáum lítið til þeirra.“
Bendir Eyþór á að tónleikarnir í gær hafi ekki verið einsdæmi, sem sé miður.
„En þegar þeir sem sitja fyrir framan standa upp til að dansa neyðast aðrir til að standa líka ef þeir vilja sjá sviðið. Sumir geta það ekki, til dæmis vegna aldurs eða hreyfihömlunar. Aðrir vilja einfaldlega njóta tónleikanna sitjandi.
Mér finnst þetta fyrst og fremst spurning um tillitssemi og virðingu fyrir öðrum tónleikagestum. Það er sjálfsagt að fólk vilji skemmta sér, en frelsi eins til að njóta tónleika á sinn hátt ætti ekki að koma í veg fyrir að aðrir geti notið þeirra.“
Annað sem veldur Eyþóri áhyggjum er ölvun sem hann segir áberandi á sumum tónleikum. Þekkt hljómsveit hélt afmælistónleika í Eldborg í haust og segir Eyþór að stemningin þar hafi á köflum minnt á hávaðasama fylleríssamkomu frekar en tónleika.
„Sumir gestir virtust orðnir talsvert ölvaðir áður en tónleikarnir hófust. Á meðan tónlistin var flutt var hrópað, veifað áfengisglösum og bjórdósum, dansað og tekið upp á síma. Þetta truflaði upplifun þeirra sem voru komnir til að hlusta á tónlistina.“
Veltir Eyþór fyrir sér hvort Harpa og aðrir tónleikahaldarar þurfi að setja skýrari reglur um svona hegðun. Þegar fólk kaupir sér sæti á tónleikum ætti það að geta treyst því að fá að sjá sviðið. Sé gert ráð fyrir að fólk standi og dansi hluta tónleikanna ætti slíkt að koma fram þegar miðarnir eru seldir.
„Miðinn í gær kostaði 16.900 krónur á mann, samtals 33.800 krónur fyrir okkur hjónin. Fyrir þá upphæð finnst mér ekki ósanngjarnt að ætlast til þess að geta séð og heyrt í listamönnunum.“
Með færslu sinni deilir Eyþór myndum sem hann tók úr sæti sínu þar sem sjá má útsýnið, eða heldur útsýnisleysið, á tónleikunum í gær.
Tónleikarnir fóru fram í Eldborg í Hörpunni í gær.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗