Björgvin Franz birtir „væmnastatusinn“ sem allir hafa beðið eftir – „Lífið er svo MIKLU betra“

Leikarinn Björgvin Franz Gíslason er ástfanginn. Það hefur reyndar ekki verið mikið leyndarmál, en Smartland greindi frá því í sumar að leikarinn hefði fundið ástina á ný með óperusöngkonunni Bryndísi Guðjónsdóttur eftir að Björgvin birti myndir af þeim á ferðalagi á Ítalíu.

Nú hefur Björgvin þó sjálfur játað ást sína í færslu á Facebook. Tilefnið er að nú er ár síðan hann féll fyrir Bryndísi sinni á göngum Borgarleikhússins.

„Jæja, hér kemur væmnistatusinn sem allir hafa beðið eftir. Það er nákvæmlega ár síðan að ég kolféll fyrir þessari konu á göngum Borgarleikhússins þegar hún var að æfa La Boheme klædd eins og hefðardama (gullfalleg skvísa by the way) og ég klæddur eins og Elsa Lund (ekki eins falleg skvísa) en með hina fullkomnu sokkabuxnaleggi (sem mér skilst að hún hafi kolfallið fyrir).“

Leikarinn heldur áfram og lýsir því að Bryndís hafi fyllt líf hans af gleði, húmor og kærleika. Nú sé eitt ár liðið síðan leikarinn féll kylliflatur og sér hann ekki fyrir sér að ná að standa upp aftur þar sem árin eigi vonandi eftir að verða mun fleiri.

„Síðan hún kom inn í líf mitt hefur hún fyllt það af stanslausri gleði, húmor og kærleika frá því hún vaknar og þangað til hún fer að sofa. Hún hefur hjálpað mér að vaxa og þroskast á hraða sem ég skil ekki og hugsar alltaf um aðra fyrst, hvernig hún geti glatt fólk og létt því lífið. Hún elskar fjölskyldu mína og sinnir henni meira að segja betur en ég. Í kaupbæti fæ ég að njóta samneytis við hina dásamlegu fjölskyldu hennar sem gerir nákvæmlega það sama og Bryndís; peppar, elskar og styður í hvívetna. Vonandi er þetta bara eitt af mörgum árum sem við eigum framundan því lífið er svo MIKLU betra með þér.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab