Fengu gull fyrir þriggja rétta kvöldverð
Íslenska kokkalandsliðið hlaut gull fyrir frammistöðu sína á fyrsta keppnisdegi HM í matreiðslu í Lúxemborg í gær.
Liðið keppti í heita eldhúsinu, eða „Restaurant of Nations“, þar sem mikið reynir á skipulag og samvinnu liðsmanna. Verkefnið felst í því að elda þriggja rétta kvöldverð fyrir 110 gesti.
Á meðan á keppninni stóð komu upp vandamál tengd rafmagni í keppniseldhúsinu sem settu strik í reikninginn.
„Slíkar aðstæður geta reynst erfiðar þegar hver mínúta skiptir máli, en liðið tókst á við verkefnið af yfirvegun. Vegna vandamálanna ákváðu keppnishaldarar að seinka framreiðslu um 30 mínútur hjá öllum liðum og hófst hún því ekki fyrr en kl. 18.30 í stað 18.00,“ segir í tilkynningu.
„Það er greinilegt að mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning liðsins undanfarna mánuði. Samheldnin er góð, skipulagið traust og keppendur vita nákvæmlega hvað þeir ætla sér. Þrátt fyrir þær áskoranir sem komu upp hélt liðið sínu striki og sýndi vel til hvers það er komið,“ segir þar jafnframt.
Georg Arnar Halldórsson, þjálfari kokkalandsliðsins, var ánægður með liðið í lok keppnisdags.
„Dagurinn gekk mjög vel og liðið stóð sig frábærlega þrátt fyrir ákveðna tæknilega erfiðleika hjá mótshöldurum,“ segir hann í tilkynningunni.
Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, bætir við:
„Það er alltaf sérstakt að fylgjast með liðinu okkar stíga inn í keppniseldhúsið eftir allan þann undirbúning sem liggur að baki. Við vissum að liðið væri vel undirbúið, en það er ekki síður mikilvægt að sjá hvernig það bregst við þegar hlutirnir ganga ekki alveg samkvæmt áætlun. Liðið sýndi mikinn styrk í dag og það er alveg ljóst að þetta lið er komið hingað til að ná árangri. Við ætlum okkur alla leið,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗