Staðfesta langvarandi meiðsli Evrópumeistarans
Stjörnuleikmaður París SG Desiré Doué hefur slitið krossband en þetta staðfesti félagið á vefsíðu sinni í dag.
Doué meiddist í lok seinni hálfleiks í leik gegn Nice er hann sneri sér til að skýla boltanum fyrir varnarmanni Nice. Þá féll hann við án þess að neinn varnarmaður hafði komið við hann og þurfti að fara af velli.
Nú hefur París SG staðfest meiðslin og greina enn fremur frá því að hann verður frá keppni út tímabilið:
Avec toi, Désiré. ❤️ https://t.co/QmOYHvlm3M
— Paris Saint-Germain (@PSG_inside) November 22, 2026
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗