Forseti COP31: Ekkert samkomulag náðist
Erlent | AFP | 22.11.2026 | 12:55
Murat Kurum, forseti COP31, viðurkenndi í dag að ekki hefði tekist að ná samkomulagi um heildarsamning á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna eftir að ríki höfðu andmælt samningsdrögum.
„Þessum texta var ekki þröngvað upp á neinn,“ sagði Kurum, sem er einnig umhverfisráðherra Tyrklands, á lokafundi ráðstefnunnar í borginni Antalya við Miðjarðarhaf.
„Mér skilst að ekki sé samkomulag um þennan texta. Af þeirri ástæðu hafa þessar ákvarðanir ekki verið samþykktar.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗