Draumur sem rættist

Breski leikarinn Robert Pattinson er næsti James Bond. Viðbrögð við fréttunum hafa verið blendin. AFP/Tiziana FABI

James Bond, leyniþjónustumaðurinn sem kýs martini hristan, ekki hrærðan, er nú í höndum Roberts Pattinsons. Pattinson er einn þekktasti leikari samtímans, meðal annars fyrir hlutverk sín í Twilight-myndunum, The Batman, Tenet, Harry Potter and the Goblet of Fire og The Odyssey.

Í sjö ár hafa menn velt því fyrir sér hver myndi taka við af Daniel Craig, sem lék í síðustu fimm Bond-myndunum. Svarið fékkst 16. nóvember þegar Amazon MGM Studios tilkynnti að Pattinson hefði hreppt hlutverkið.

Er hann of frægur?

Nú þegar nýr Bond hefur verið kynntur eru viðbrögðin blendin, en Pattinson leynir ekki ánægjunni.

„Að segja að það sé draumur að rætast að fá þetta hlutverk er vægt til orða tekið,“ sagði Pattinson í yfirlýsingu.

Pattinson var valinn úr hópi fimm leikara. Hinir voru Nicholas Hoult, Jack Lowden, Josh O'Connor og Callum Turner. Leikararnir fóru í prufur í London síðla október þar sem meðal annars reyndi á hæfni þeirra til að framkvæma áhættuatriði, fara með samtöl og koma vel út fyrir framan myndavélina.

Pattinson bar sigur úr býtum í valinu. Hann er sá þekktasti þeirra sem hingað til hafa hreppt hið eftirsótta hlutverk og hafa sumir gagnrýnendur bent á að það kunni að verða honum fjötur um fót. Þá hefur verið bent á að hann muni leika bæði Batman og Bond í kvikmyndum sem ráðgert er að frumsýna árið 2028.

Með sting í hjartanu

Leikstjóri næstu James Bond-myndar er Denis Villeneuve, sem er þekktastur fyrir myndirnar Dune (2021 og 2024), Blade Runner 2049 (2017), Arrival (2016) og Sicario (2015). Hann hefur hlotið Óskarstilnefningar fyrir leikstjórn. Þetta verður fyrsta Bond-mynd hans.

Í breska dagblaðinu The Guardian er vitnað í leikarann Ralph Fiennes, sem lék Gareth Mallory, síðar yfirmann leyniþjónustunnar með kóðanafninu M, á móti Craig í Skyfall, Spectre og No Time to Die.

Daniel Craig var Bond í síðustu fimm kvikmyndum. Einhverjir munu sakna hans.

Fiennes virtist í fyrstu heldur dapur í bragði þegar hann var spurður um nýja Bond-leikarann.

„Ég er enn ástfanginn af Daniel Craig. Þetta er erfitt. Ég er með sting í hjartanu,“ sagði hann.

Hann bætti þó við:

„Pattinson er frábær leikari. Ég er viss um að hann verður frábær.“

Það er ekki nýtt að nýir Bond-leikarar sæti gagnrýni. Craig þótti til að mynda of lágvaxinn, of litlaus og of ljóshærður. 

Ítarlega er fjallað um nýjan Bond í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab