Banna karlmönnum að mæta á kvennaleiki
Jafnréttisfrömuðir krefjast þess að FIFA grípi til aðgerða eftir að knattspyrnusamband Írans hefur bannað karlmönnum að mæta á kvennaleiki í landinu.
Mohammad Reza Keshavari-Fard, framkvæmdastjóri deildarinnar, sem undirritaði tillöguna í síðasta mánuði, bætti við að heimalið leiks „skuli bera ábyrgð á öllum afleiðingum sem af hljótast“ verði fyrirmælin brotin.
Með þessu banni er ekki bara átt við karlkyns stuðningsmenn heldur einnig þjálfara, blaðamenn, dómara og fleiri.
Þessi nýja regla fer gegn reglum Alþjóðaknattspyrnusambandsins, en þar kemur fram að mismunun á grundvelli kyns er stranglega bönnuð og gæti leitt til banns eða brottreksturs úr sambandinu.
Mannréttindastofnunin, Amnesty International, hefur nú krafist þess að FIFA grípi til aðgerða og segir Íran trekk í trekk að finna nýjar leiðir til að mismuna konum í knattspyrnu með því að banna karlkyns blaðamönnum, dómurum og þjálfurum að sækja leiki kvenna,“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗