Fjölbýlishús hrundi og einn lést í árás Rússa

Fjölbýlishúsið hrundi að hluta til.

Fjölbýlishúsið hrundi að hluta til. AFP/Vladyslav Musiienko

Einn lést þegar Rússar gerðu árás á fjölbýlishús norður af Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, með þeim afleiðingum að byggingin hrundi að hluta, að sögn úkraínskra yfirvalda í dag, sem vöruðu við því að fleiri gætu legið undir rústunum.

Rússar hafa látið sprengjum rigna yfir Úkraínu á hverri nóttu, meðal annars yfir íbúðahverfi, á sama tíma og stríðshrjáð landið býr sig undir enn einn veturinn í innrás sem staðið hefur í nærri fimm ár.

Í árás næturinnar á Dymer í Kænugarðshéraði, um 45 kílómetra norður af höfuðborginni, varð fimm hæða bygging fyrir árás og lést að minnsta kosti einn.

„Lík látins einstaklings fannst í rústunum … Leitar- og björgunaraðgerðir halda áfram. Fjöldi slasaðra er kominn upp í þrjá,“ sagði Tymur Tkachenko, héraðsstjóri Kænugarðshéraðs, á Telegram.

Viðbragðsaðilar að störfum í morgun.

Viðbragðsaðilar að störfum í morgun. AFP/Vladyslav Musiienko

Myndir AFP frá vettvangi sýndu björgunarfólk leita í rjúkandi rústum eftir að byggingin hafði hrunið að hluta.

„Því miður gæti fólk enn verið fast undir rústunum, 14 manns er enn saknað,“ sagði Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, á X.

Rússar réðust einnig á spennistöð í Dnípropetrovsk-héraði, að sögn Sergiy Koretsky, forsætisráðherra Úkraínu, á samfélagsmiðlum.

AFP/Vladyslav Musiienko

Rússar hafa hert árásir sínar á Úkraínu, einkum á orkukerfi landsins, nú þegar hitastigið er farið að nálgast frostmark.

Fyrr í vikunni hét Vladimír Pútín Rússlandsforseti „sársaukafullum“ viðbrögðum við árásum Úkraínumanna sem ollu skemmdum á Krímskagabrúnni, tákni yfirráða Pútíns yfir hinu innlimaða svæði.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab